Ný brunavarin útidyrahurð á stigagangi á Selfossi

  • Gluggar, IS
  • 26-05-2026

Verkefni

Demontering á gamalli hurð og ísetning nýrrar, brunavarinnar útidyrahurðar í fjölbýlishúsi.

Staðsetning

Fjölbýlishús í nágrenni Krambúðarinnar á Selfossi.

Verktími

Lítið og fljótlegt verk – sjálf ísetning hurðarinnar tók um 2–3 klukkustundir.

Ástand fyrir framkvæmdir

Gamla hurðin þurfti að víkja fyrir nýrri hurð sem uppfyllir kröfur um brunavarnir sem gilda um hurðar íbúða sem opnast út í sameiginlegan stigagang.

Ný brunavarin hurð eftir ísetningu
Gömul hurð fjarlægð fyrir ísetningu

Fyrir
Eftir

Umfang verksins

Verkefnið fólst í að fjarlægja gömlu hurðina og setja upp nýja brunavarða hurð sem viðskiptavinurinn hafði sjálfur útvegað, ásamt húni og skrá.

Framkvæmd

Við tókum gömlu hurðina úr og settum þá nýju í staðinn, gengum frá lömum, skrá og húni. Auk þess var steypt lítil fylling undir þröskuldinn, hún látin þorna og þröskuldurinn síðan felldur í.

Niðurstaða

Hurðin er komin í fulla notkun og gengur eins og hún á að gera – lamir, skrá og húnn rétt stillt. Þetta verkefni er dæmi um að við tökum jafnt að okkur lítil verk sem stór, og bregðumst hratt við þegar þörf er á.

Þarftu að skipta um hurð á stigagangi eða í húsinu þínu? Óska eftir tilboði og við klárum verkið hratt og vel.